Anna Katrín á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram nú um helgina í Laugardalshöllinni.
Þar leiddu saman hesta sína frambærilegasta frjálsíþróttafólk landsins. ÍR sigraði stigakeppni mótsins bæði í karla- og kvennaflokki
UÍA átti einn keppenda á mótinu Önnu Katrínu Svavarsdóttur en hún varpaði kúlu 8,55 m og hafnaði þar í 11 sæti og stökk yfir 1,55 í hástökki sem skilaði henni 5.-6. sæti. Óskum við henni til hamingju með frammistöðuna.