Verkefnastjóri óskast
Ungmennafélag Íslands óskar eftir að ráða verkefnisstjóra til að vinna að undirbúningi og framkvæmd 14. Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Egilsstöðum 29.-31. júlí 2011.
Starfið er krefjandi en jafnframt fjölbreytt og líflegt. Verkefnastjóri þarfa að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og hafa góða framkomu. Þekking á starfi ungmennafélagshreyfingarinnar er góður kostur en ekki nauðsynleg. Um tímabundið starf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar.
Skriflegri umsókn með upplýsingum um fyrri störf, menntun og reynslu skal skila til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík fyrir 15. febrúar 2011. Umsóknir má einnig senda í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir sama tíma.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 5682929.