Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum 10 ára og yngri
Meistaramót UÍA frjálsum íþróttum fyrir 10 ára og yngri fer fram laugardaginn 5. febrúar kl í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Mótið hefst kl 11:00 og verður keppt í flokkum polla og pæja 8 ára og yngri og hnokka og hnáta 9-10 ára í 40 m hlaupi, langstökki án atrennu, boltakasti og þrautabraut.
Á þessu móti ræður leikgleðin ríkjum og allir þátttakendur fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna.
Skráning er hafin og senda má skráningar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. en einnig verður unnt að skrá sig á staðnum. Þátttökugjald er 1000 kr.