Unglingalandsmótsnefnd fundar
Undirbúningi fyrir Unglingalandsmót UMFÍ, sem fram fer á Egilsstöðum um Verslunarmannahelgina, miðar vel áfram.
ULMnefnd hittist síðastliðinn fimmtudag og fór yfir stöðu mál. Búið er að skipa sérgreinastjóra í öllum þeim 12 greinum sem keppt verður í á mótinu og undirbúningur annarra þátta er einnig í fullum gangi.
Hér til hliðar má sjá nefndarmenn ULMnefndar önnum kafna í vinnu sína.