MÍ 15-22 ára í frjálsum íþróttum
Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum fer fram nú um helgina í Laugardalshöllinni.
222 keppendur frá 17 félögum eru skráðir til leiks. Ljóst er að þetta verður sterkt og spennandi mót og keppni hörð enda mætast þar besta og efnilegasta frjálsíþróttafólk landsins, í þessum aldursflokkum. Á mótinu verða að sjálfsögðu stormandi UÍA menn og konur á ferð en sendir UÍA sex keppendur á mótið. Óskum við þeim alls hins besta.