Nýárssýning Fimleikadeildar Hattar
Föstudaginn 14. janúar fer fram Nýárssýning Fimleikadeildar Hattar í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Á sýningunni munu um 200 iðkendur sýna listir sýnir og er þema sýningarinnar í ár Sirkus.
Sýningin hefst kl 18:00 og er öllum opin sem áhuga hafa á fimleikum og vilja sjá flotta krakka leika listir sínar. Aðgangseyrir á sýninguna er 300 kr fyrir 12 ára og eldri, allur ágóði af sýningunni mun fara í kaup á áhöldum.