Austfirskar blakkonur leggja land undir fót
Fjórar blakkonur frá Blakdeild Þróttar í Neskaupsstað halda innan skamms til Lúxemborgar með íslenska kvennalandsliðinu í blaki.
Þær Helena Kristín Gunnarsdóttir, Kristín Salín Þórhallsdóttir, Miglena Apostolova og Zaharina Filipova mun leika með íslenska liðinu, en það keppir það á boðsmótinu Novotel Cup dagana 7.-9. janúar.
Ísland hefur tvisvar áður tekið þátt í mótinu og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur að þessu sinni. Íslenska liðið keppir við Skotland, Lúxemborg og Liechtenstein.
UÍA óskar þeim stöllum sem og liðinu öllu góðs gengis.