Fjórðungsglíma Austurlands
Vekjum athygli á að Fjórðungsglíma Austurlands, baráttan um Aðalsteinsbikarinn verður háð í íþróttahúsinu á Reyðarfirði, mánudaginn 27. desember kl 16.00-18.00.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Stelpur og strákar (5.-7. bekk), meyjar og piltar (8.-10. bekk), konur og karlar (16 ára og eldri).
Hvetjum glímuáhugamenn að láta þennan viðburð ekki framhjá sér fara og fjölmenna til að fylgjast með okkar frambærilega glímufólki etja kappi á heimavelli.
Að mótinu loknu verður íþróttamaður Vals árið 2010 útnefndur.