Körfuboltaráði komið á laggirnar
Áhugamenn um körfubolta komu til fundar við framkvæmdastjóra UÍA, fyrir skemmstu og ræddu möguleika á samstarfi við útbreiðslu körfuboltastarfs á Austurlandi. Ákveðið var að stofna innan UÍA körfuboltaráð, sem hafi það að markmiði að kynna og styðja við körfuboltastarf á sambandssvæðinu.
Ýmsar góðar hugmyndir þar að lútandi komu fram og má búast við spennandi viðburðum á næstu mánuðum, nái þær fram að ganga. Ráðið rúmar enn fleiri áhugasama körfuboltamenn og -konur og þeir aðilar sem vilja leggja ráðinu lið eru beðnir að setja sig í samband við UÍA skrifstofuna.