Körfuboltaráði komið á laggirnar

Áhugamenn um körfubolta komu til fundar við framkvæmdastjóra UÍA, fyrir skemmstu og ræddu möguleika á samstarfi við útbreiðslu körfuboltastarfs á Austurlandi. Ákveðið var að stofna innan UÍA körfuboltaráð, sem hafi það að markmiði að kynna og styðja við körfuboltastarf á sambandssvæðinu.

 

Ýmsar góðar hugmyndir þar að lútandi komu fram og má búast við spennandi viðburðum á næstu mánuðum, nái þær fram að ganga. Ráðið rúmar enn fleiri  áhugasama körfuboltamenn og -konur og þeir aðilar sem vilja leggja ráðinu lið eru beðnir að setja sig í samband við UÍA skrifstofuna.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok