Úrvalshópur UÍA fræðist um hugarþjálfun
Úrvalshópur UÍA í frjálsum íþróttum hittist í gærkvöldi og átti notalega kvöldstund. Hreinn Halldórsson, kúluvarpari með meiru, kom og ræddi við hópinn um gildi hugarþjálfunar. Hreinn rifjaði auk þess upp minningar af íþróttaferli sínum og sýndi hópnum gamlar blaðaúrklippur frá þeim tíma. Þökkum við Hreini fyrir afar fræðandi og ánægjulegt kvöld.