Greinamót UÍA í frjálsum íþróttum BREYTT DAGSETNING
Greinamót UÍA í frjálsum íþróttum sem fara átti fram í Fjarðahöllinni, laugardaginn 27. nóvember hefur verið flýtt til föstudagsins 26. nóvember.
Ástæðan er sú að á laugardeginum munu austfirsk ungmenni streyma til Hafnar í Hornafirði og taka þátt í Stíl og Samaust, en þar reyna þátttakendur í félagsmiðstöðvum á Austurlandi með sér í söng og fatahönnun. Til að gefa sem flestum kost á að taka þátt verður mótið okkar síðdegis á föstudeginum. Fjarðahöllinn opnar kl 17 og hefst keppni kl 17.30. Keppt verður í flokkum 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17 ára og eldri. Athugið að keppendur sem eru nú 10 ára en verða 11 ára á næsta ári er velkomið að koma og keppa í flokki 11-12 ára. Greinar sem keppendur spreyta sig á að þessu sinni eru spretthlaup, grindahlaup, langstökk og þrístökk.Þátttökugjöld eru 500 kr á hvern keppenda, óháð greinafjölda. Mótið er hluti af mótatvennu þar sem keppendur safna stigum, en í hverri grein gefur fyrsta sæti 6 stig, annað sæti 5 stig og síðan koll af kolli. Síðar í vetur mun fara fram annað mót þar sem keppt verður í hástökki, kúluvarpi, atrennulausum stökkum og ef til vill fleiri greinum. Að mótaröðinni lokinni veitt verðlaun fyrir stigahæsta einstakling af hvoru kyni, í hverjum aldursflokki.
Eins og flestir vita er tartanundirlag í höllinni og gaddaskórnir því velkomnir með. Einnig er rétt að klæða sig vel því oft er kalt í húsinu.
Skráning á mótið er hafin og skulu skráningar berast í neffang UÍA This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..