UÍA samæfing í frjálsum íþróttum
Miðvikudaginn 6. júlí efnir UÍA til samæfingar í frjálsum íþróttum á Vilhjálmsvelli. Hefst æfingin kl 17 og lýkur kl 19. Þar gefst öllum krökkum sem áhuga hafa á frjálsum íþróttum tækifæri á að spreyta sig í hinum ýmsu greinum undir leiðsögn þjálfara á svæðinu.
Fín æfing fyrir keppni á Sumarhátíð og Unglingalandsmóti. Æfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu og vonumst við til að sjá sem flesta.