Nýr framkvæmdastjóri UÍA
Stjórn UÍA auglýsti eftir framkvæmdastjóra nú á dögunum. Alls bárust 8 umsóknir og tók stjórn UÍA þá ákvörðun að ráð Hildi Bergsdóttur í starfið.
Hildur er 32 ára gömul og hefur að undanförnu starfað sem félagsráðgjafi hjá Fljótsdalshéraði. Hildur hefur mikinn og góðan bakgrunn í æskulýðs og íþróttastarfi, hefur t.a.m. starfað mikið fyrir ungmennafélagið Þrist, bæði sem þjálfari og nú síðast til langs tíma sem formaður félagsins. Hildur tekur við starfinu af Stefáni Boga Sveinssyni sem hverfur til annarra starfa en mun sinna verkefnum fyrir UÍA í það minnsta fram á haustið.
Þá hefur stjórn UÍA ákveðið að ráða Gunnar Gunnarsson ritara UÍA til starfa á skrifstofu sambandsins í sumar. Mun hann ásamt fráfarandi og nýráðnum framkvæmdastjóra sinna verkefnum sumarsins en nýráðinn framkvæmdastjóri tekur síðan að fullu til starfa með haustinu.