Boðað til afmælisformannafundar
UÍA hefur boðað til formannafundar þann 28. júní. Sambandið var einmitt stofnað þann dag á Eiðum fyrir sjötíu árum.
Fundurinn verður í Austrasalnum klukkan 20:00 en aðalmálið á dagskrá er Unglingalandsmótið og aðkoma aðildarfélaga UÍA að því.
Því hefur verið beint til aðildarfélaga UÍA að flagga fána sambandsins í tilefni dagsins.