Gabríel Örn íþróttamaður Neista
Gabríel Örn Björgvinsson var í dag útnefndur íþróttamaður ársins 2008 hjá Neista á Djúpavogi.
Gabríel þykir afar efnilegur íþróttamaður í ýmsum greinum, góður námsmaður og hafa prúða framkomu. Viðurkenninguna fékk hann á níutíu ára afmælishátíð Neista sem haldin var á Hótel Framtíð. Fjórir aðrir íþróttamenn, úr sundi og knattspyrnu, voru einnig heiðraðir. Andrés Skúlason og Albert Jensson fengu viðurkenningu fyrir áralangt fórnfúst starf í þágu félagsins.
Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri UÍA, flutti Neistamönnum afmæliskveðju frá sambandinu og færði þeim blómvönd.