Sambandsþing
Sambandsþing UÍA verður haldið á Seyðisfirði, Laugardaginn 16. maí. Þingið hefst klukkan 10:30 og mun standa fram eftir degi.
Á dagskrá þingsins eru hefðbundin þingstörf en að auki liggja fyrir þinginu lagabreytingatillögur þar sem lög sambandsins eru endurskoðuð. Þá eru á þinginu veittar viðurkenningar og m.a. verður íþróttamaður UÍA 2008 verðlaunaður.Seturétt á þinginu hafa fulltrúar frá öllum aðildarfélögum UÍA, sem eru 45 talsins.