Nýr formaður Hattar
Aðalfundur Íþróttafélagsins Hattar var haldinn miðvikudaginn 30. apríl sl. Þar var kosin ný stjórn og nýr formaður tók við embætti.
Helgi Sigurðsson sem verið hefur formaður félagsins síðan 2002 lét nú af embætti í kjölfar þess að hann var kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Við formannsembættinu tók Davíð Þór Sigurðarson. Aðrir stjórnarmenn voru kjörnir þau Bylgja Borgþórsdóttir, Adda Birna Hjálmarsdóttir, Björgvin Steinar Friðriksson og Mekkin Guðrún Bjarnadóttir.Ný stjórn hefur þegar hafið störf við að udirbúa sumardagskrá félagsins. Við hjá UÍA óskum þeim allrar velgengni og vonumst eftir góðu samstarfi.