Nýr formaður Hattar

Aðalfundur Íþróttafélagsins Hattar var haldinn miðvikudaginn 30. apríl sl. Þar var kosin ný stjórn og nýr formaður tók við embætti.

Helgi Sigurðsson sem verið hefur formaður félagsins síðan 2002 lét nú af embætti í kjölfar þess að hann var kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Við formannsembættinu tók Davíð Þór Sigurðarson. Aðrir stjórnarmenn voru kjörnir þau Bylgja Borgþórsdóttir, Adda Birna Hjálmarsdóttir, Björgvin Steinar Friðriksson og Mekkin Guðrún Bjarnadóttir.

Ný stjórn hefur þegar hafið störf við að udirbúa sumardagskrá félagsins. Við hjá UÍA óskum þeim allrar velgengni og vonumst eftir góðu samstarfi.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok