Undirbúningur fyrir Frjálsíþróttaskóla í fullum gangi
Undirbúningur fyrir Frjálsíþróttaskóla UMFÍ og FRÍ sem haldinn verður á Egilsstöðum í næstu viku stendur nú sem hæst. Eins og nafnið ber með sér er aðaláherslan lögð á að kynna hinar fjölbreyttu greinar frjálsíþrótta.
Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Á hverju kvöldi er staðið fyrir kvöldvökum og í vikunni verða ýmsar fleiri íþróttagreinar kynntar. Einnig verður farið víðar en bara um Egilsstaði og boðið upp á ýmsa afþreyingu í næsta nágrenni.
Það verður því dúndrandi stuð í skólanum frá morgni til kvölds. Skólastjóri verður Hildur Bergsdóttir.
Áhugasamir geta skráð sig í skólann hér á vef UMFÍ.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..