Félagsmálaskóli UÍA - Námskeið 5
Þann 22. apríl fer fram 5. námskeiðið af 6 í Félagsmálaskóla UÍA. Námskeiðið ber heitið Félagasamtök og fjölmiðlar.
Námskeiðið fjallar um samskipti félaga og fjölmiðla. Hvernig á að vekja athygli fjölmiðla á verkefnum og þess háttar. Fyrirlesari verður Jón Knútur Ásmundsson fyrrverandi fréttamaður.Námskeiðið er ókeypis. Það fer fram sem fyrr segir þann 22. apríl á skrifstofu UÍA og stendur frá 19:00-22:00 (eða styttra ef vel gengur). Endilega skráið ykkur og takið þátt. Þetta er mjög gagnlegt fyrir alla sem áhuga hafa á félagsmálum.