Félagsmálaskóla frestað
Námskeiði 4 í Félagsmálskóla UÍA sem halda átti í kvöld hefur verið frestað. Námskeiðið verður þess í stað haldið þann 7. apríl.
Námskeiðið er sem fyrr segir það fjórða í röðinni af sex og verður farið yfir fundarsköp og fundastjórn. Námskeið 5 er síðan fyrirhugað 16. apríl og ber það yfirskriftina Félagasamtök og fjölmiðlar. Staðsetning þess verður nánar auglýst síðar.