Var ekki áramótaheitið að fara á landsmót?
UÍA leitar logandi ljósi að fólki sem er tilbúið að keppa og safna stigum fyrir sambandið á landsmóti UMFÍ á Akureyri.
{mosimage} Helgina 9. - 12. júlí verður haldið upp á 100 ára afmæli landsmóta UMFÍ þegar Akureyringar bjóða til landsmóts. Hjá UÍA er hafin vinna til að tryggja sem glæsilegasta sveit austfirsks íþróttafólks á hátíðina. Hér á vef UMFÍ má sjá lista yfir þær keppnisgreinar sem eru í boði.
Skráningar og nánari upplýsingar eru hjá skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Var ekki örugglega áramótaheitið að koma sér í form og fara á landsmót?