Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram á Selfossi síðastliðna helgi, UÍA átti þar fimm keppendur sem allir stóðu sig með ágætum. Átta verðlaun komu til baka austur, auk góðra bætinga og minninga af skemmtilegu móti.
Mánudaginn 28. júlí verður samæfing á Vilhjálmsvelli klukkan 17:00. Tilvalið er fyrir frjálsíþróttaiðkendur sem ætla sér að fara á unglingalandsmót að mæta á æfinguna til þess að undirbúa sig
Unglingalandsmótið fer fram helgina 1.-4. ágúst á Sauðárkróki og fer skráning fram á http://skraning.umfi.is/ Skráningu lýkur sunnudagskvöldið 27. júlí,
Æfingin er fyrir 11 ára og eldri, eða fyrir þann aldur sem keppir á unglingalandsmóti.
Urriðavatnssundinu 2014 er lokið og fór það fram á laugardaginn. Metskráning var í sundið og luku alls 54 manns sundinu, þar af fóru 49 í landvættarsund sem er 2,5 km.
Dagana 31. júlí - 4. ágúst fer fram 17. Unglingalandsmót UMFÍ og er það haldið á Sauðárkróki þetta árið. Keppt er í fjölmörgum greinum en frekari upplýsingar um þær er hægt að finna á heimasíðu UMFÍ á slóðinni http://umfi.is/category/unglingalandsmotumfi
Skráningafrestur er til miðnættis sunnudaginn 27. júlí og er mótsgjald 6.000 kónur á keppanda, óháð greinafjölda. Við hvetjum fólk til að nota nafn UÍA á þau lið sem eru skráð til leiks af Austurlandi, meðal annars til þess að hjálpa hvort öðru við að hvetja okkar fólk áfram.
Í ár verður boðið upp á bogfimi sem keppnisgrein á unglingalandsmóti í fyrsta skipti. Bogfimideild SKAUST hefur boðist til þess að vera þeim sem ætla sér að taka þátt í bogfimi á unglingalandsmóti innan handar með bogum og námskeiði ef áhugi er fyrir hendi, fyrir mótið.
Endilega sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ef áhugi er fyrir að námskeiði í bogfimi.
Næstkomandi laugardag, þann 26. júlí fer fram Urriðavatnssund þar sem boðið er uppá nokkrar sund vegalengdir. Skráning í sundið fer fram á heimasíðu þess á slóðinni urridavatnssund.is
Sumarhátíð UÍA fór fram um síðastliðna helgi og viljum við þakka öllum þeim flottu þátttakendum sem mætti til leiks og öðrum góðum gestum fyrir skemmtilega helgi. Einnig viljum við þakka öllum þeim styrktaraðilum sem komu að móti fyrir að leggja hönd á plóg.