Aðalsteinsbikarinn - Fjórðungsglíma Austurlands

Tuttugu og þrír keppendur kepptu í þremur flokkum karla og þremur flokkum kvenna um Aðalsteinsbikarinn, í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember 2014. Mótið tókst með ágætum og sjá mátti margar líflegar glímur um hin veglegu verðlaun, Aðalsteinsbikarinn, sem gefinn var í minningu Aðalsteins Eiríkssonar glímukappa og glímufrömuðar á Reyðarfirði.

 

Eftirtaldir einstaklingar stóðu uppi sem sigurvegarar og hömpuðu  Aðalsteinsbikarnum árið 2014

Stelpur 10-12 ára – Fanney Ösp Guðjónsdóttir og Marta Lovísa Kjartansdóttir

Strákar 10- 12 ára – Kjartan Mar Garski Ketilsson

Meyjar 13-15 ára – Kristín Embla Guðjónsdóttir

Piltar 13- 15 ára – Leifur Páll Guðmundsson

Konur  - Eva Dögg Jóhannsdóttir

Karlar – Ásmundur Hálfdán Ásmundsson

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ