Aðalsteinsbikarinn - Fjórðungsglíma Austurlands
Tuttugu og þrír keppendur kepptu í þremur flokkum karla og þremur flokkum kvenna um Aðalsteinsbikarinn, í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember 2014. Mótið tókst með ágætum og sjá mátti margar líflegar glímur um hin veglegu verðlaun, Aðalsteinsbikarinn, sem gefinn var í minningu Aðalsteins Eiríkssonar glímukappa og glímufrömuðar á Reyðarfirði.
Eftirtaldir einstaklingar stóðu uppi sem sigurvegarar og hömpuðu Aðalsteinsbikarnum árið 2014
Stelpur 10-12 ára – Fanney Ösp Guðjónsdóttir og Marta Lovísa Kjartansdóttir
Strákar 10- 12 ára – Kjartan Mar Garski Ketilsson
Meyjar 13-15 ára – Kristín Embla Guðjónsdóttir
Piltar 13- 15 ára – Leifur Páll Guðmundsson
Konur - Eva Dögg Jóhannsdóttir
Karlar – Ásmundur Hálfdán Ásmundsson