Úrvalshópur UÍA í frjálsum heimsótti ÍR

Átta unglingar úr Úrvalshópi UÍA í frjálsum íþróttum, lögðu á dögunum land undir fót og heimsóttu ÍR. Markmið ferðarinnar var að nýta frábæra innanhússaðstöðu í Laugardalshöll, læra sitthvað nýtt af þjálfurum ÍR og æfa í stærri jafningjahópi. ÍRingarnir tóku svo sannarlega vel á móti okkar fólki, sem komst þó ekki suður fyrr en seint og um síðir vegna veðurs og ófærðar. Þjálfarar ÍR sem allt eru þekkt nöfn úr frjálsíþróttaheiminum; Hörður Gunnarsson, Þráinn Hafsteinsson, Þórdís Gísladóttir, Einar Vilhjálmsson og Pétur Guðmundsson sáu um æfingar þar sem lögð var áhersla á  ýmis tækniatriði sem erfitt er að æfa við þær aðstæður sem eru í boði hér eystra. Auk æfinga buðu ÍRingarir til samverustunda þar sem farið var í ratleik, sund og út að borða.

 

Þrír þjálfarar héðan að austan, þær Lovísa Hreinsdóttir, Mekkin G. Bjarnadóttir og Erla Gunnlaugsdóttir fylgdu hópnum og fylgdust grannt með þjáflunaraðferðum og æfingum kollega sinna í ÍR.

Þjálfarar ÍR komu inn á það hversu góðum árangri krakkarnir hafa náð þrátt fyrir að æfa við innanhúsaðstæður sem eru miklu lakari þeim sem félagar þeirra í Reykjavík hafa aðgang að, og að UÍA krakkarnir stæðu jafnfætis þeim sem æfa við bestu aðstæður. Því það er mikilvægt fyrir krakkana að geta æft við bestu aðstæður inn á milli á veturnar til að undirbúa sig fyrir innanhúskeppnistímabilið.

Það kom líka á daginn tveim vikum seinna, er nokkurn veginn sami hópur frjálsíþróttakrakka að austan tók þátt í Silfurleikum ÍR, að hópurinn stendur framarlega á landsvísu. Um 600 keppendur voru á leikunum og þar af átti UÍA átta keppendur, og skiluðu 12 verðlaun sér austur.  Árangur okkar krakka í þrístökki vakti sérstaka athygli en í þeirri grein sigruðu þeir Steingrímur Örn Þorsteinsson í flokki pilta 14 ára og Mikael Máni Freysson í flokki pilta 16-17 ára, Helga Jóna Svansdóttir nældi í silfurverðlaun í þrístökki 16-17 ára stúlkna og Daði Þór Jóhannsson í brons í flokki 14 ára pilta. Áhorfendur leikanna höfðu orð á því að það væri skemmtilegt og viðeigandi að sjá austfirsk ungmenni taka svo mörg verðlaun í þrístökki á leikum sem haldnir eru til heiðurs afreki Vilhjálms Einarssonar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok