Stór knattspyrnuhelgi framundan
Mikið verður um að vera hjá austfirksum knattspyrnumönnum um helgina þegar lokaslagur sumarsins fer fram. Ljóst er að annað hvort Höttur eða Leiknir mun hampa deildarmeistaratitlinum í þriðju deild karla í knattspyrnu á morgun á sama tíma og örlög Einherja í deildinni ráðast.
Leiknismenn taka á móti Magna á Búðagrund á morgun en Hattarmenn heimsækja ÍH í Hafnarfirði. Hattarleikurinn gæti haft áhrif á örlög Einherja sem er í þriðja neðsta sæti, stigi meira en ÍH. Einherjamenn fara suður og mæta liðinu í þriðja sæti, Berserkjum. Auk stigsins er Einherji með sjö mörk umfram ÍH í markahlutfall þannig að ólíklegt er að ÍH dugi jafntefli gegn Hetti nema tilkomi stórtap Einherja.
Fjarðabyggð tekur á móti deildarmeistaratitlinum í annarri deild að loknum leik liðsins gegn Sindra á Norðfjarðarvelli á morgun. Liðið hefur átt frábært tímabil, aðeins tapaði einum leik og er með níu stiga forskot á toppi deildarinnar. Í tengslum við leikinn fer fram Alcoadagur KFF og hefst hann kl 11 á Norðfjarðarvelli. Þar verður grillað, farið í leiki og stuðningsmenn hitaðir upp fyrir leikinn gegn Sindra en frítt er á völlinn í boði SÚN og Alcoa.
Huginn heimsækir Völsung á Húsavík. Seyðfirðingar eiga enn langsótta möguleika á að fylgja Fjarðabyggð upp um deild tapi Grótta og ÍR báðum leikjunum sem liðin eiga eftir.
Allir leikirnir hefjast klukkan 14:00.
Mynd fengi með góðfúslegu leyfi af vef Austurfréttar, austurfrett.is