Gengið á Lolla fjall UÍA 2014
UÍA stendur fyrir fjölskyldugöngu á fjall UÍA 2014, Lolla á Norðfirði næstkomandi sunnudag 7. september. Gengið verður frá hliðinu við Grænanes kl 11:00, búast má við u.þ.b. 4 tíma þægilegri gönguferð. Allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar veita göngustjórar ferðarinnar þær; Guðrún Sólveig Sigurðardóttir (s: 8697027) og Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir (s: 8976712) sem báðar sitja í stjórn UÍA.