Framundan hjá UÍA
Nú fer sumarið að líða undir lok en nóg er þó um að vera hjá UÍA í ágúst mánuði.
- Meistaramót Íslands fyrir krakka á aldrinum 11-14 ára fer fram á Akureyri dagana 16.-17. ágúst. Iðkendum er bent á að hafa samband við þjálfarana sína ef þeir hafa áhuga á því að keppa á mótinu.
- Þriðja og síðasta greinamót UÍA og HEF verður haldið á Vilhjálmsvelli þriðjudaginn 19. ágúst klukkan 18:00. Keppt verður í 80m,100m og 110m grindarhlaupi. 200m hlaupi, þrístökki og sleggju. Þátttökukostnaður er 500 krónur en ágóði af mótinu rennur til Daða Fannars Sverrissonar til þess að hjálpa honum á batavegi sínum.
- Sprett Sporlanga leikar verða haldnir miðvikudaginn 20. ágúst, þar geta krakkar yngri en 10 ára komið og spreytt sig í hinum ýmsum greinum. Leikarnir byrja klukkan 18:00 og greinarnar sem boðið er upp á eru: Þrístökk, spretthlaup, boltakast, langstökk, hástökk og grindahlaup.
Sjálfboðaliða vantar til þess að aðstoða við greinamótið sem og Sprett Sporlanga leikana, endilega látið vita á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 4711353 ef þið hafið tök á því að vera með.