Samæfing í frjálsíþróttum á mánudag

Næstkomandi mánudag verður samæfing á Vilhjálmsvelli, fyrir alla áhugasama frjálsíþróttaiðkendur á Austurlandi.

Æfingin er hugsuð sem smá upphitun fyrir Sumarhátíð UÍA sem fram fer helgina 11.-13. júlí og er frábært tækifæri fyrir krakkana til að prufa völlinn og njóta þeirrar góðu aðstöðu sem þar býðst.

Fjöldi þjálfara aðstoðar við æfinguna og er hún opin öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Æfingin hefst kl 17:00, 10 ára og yngri æfa til kl 18:00 en 11 ára og eldri til 18:30.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok