Meistaramót UÍA í sundi á laugardag
Hið árlega Meistaramót UÍA í sundi fer fram á Eskifirði á laugardaginn. Mótið er ætlað 17 ára og yngri og búist er við keppendum frá öllum sunddeildum á starfssvæði UÍA.
Keppendur, liðstjórar og þjálfarar skulu mæta kl 9:00 og verður fyrsta grein ræst kl 10:00. Öllum er velkomið að koma og horfa á keppnina og hvetja krakkana til dáða.
Stigakeppni er milli félaga á mótinu og því oft mikil stemming og spenna á bakkanum. Austri hampaði stigabikarnum í fyrra og spennandi verður að sjá hvaða félag verður hlutskarpast að þessu sinni.