Vel heppnuð blakhelgi í Varmá
Síðastliðna helgi fóru fram alsherjar blakdagar í Varmá, Mosfellsbæ. Þar var á dagskrá afreksbúðir fyrir ungmenni fædd á árunum 1995-2000 og meðal iðkenda voru 14 ungmenni frá Þrótti Neskaupstað. Samhliða afreksbúðunum fóru einnig fram þjálfaranámskeið og æfingar hjá A landsliðum karla og kvenna en Þróttur átti einnig fulltrúa í þeim hóp.
Helgin þótti vel heppnuð og voru þeir sem sóttu hana ánægðir með þetta framtak frá Blaksambandinu.