Bjóðum velkomin nýjan sumarstarfsmann
Heiðdís Fjóla Tryggvadóttir hefur hafið störf sem sumstarstarfsmaður UÍA og mun hún sjá um að vera til taks á skrifstofunni ásamt því að sinna öðrum verkefnum.
Heiðdís Fjóla er fædd árið 1989 og mun hún ljúka B.Sc. námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík í sumar. Heiðdís Fjóla er uppalin austfirðingur og er hún stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Við viljum bjóða Heiðdísi velkomna og vonum að við munum eiga skemmtilegt sumar saman.?