Vormót Neista og Vísis ÚRSLIT OG MYNDIR

Það má með sanni segja að sundstarf sumarsins hafi hafist með krafti síðastliðna helgi. Tæplega 100 keppendur, 16 ára og yngri, frá 6 sunddeildum á Austurlandi öttu kappi á Vormóti Neista og Vísis á Djúpavogi. Mótið var skemmtilegt í alla staði og mikil og góð stemming var á bakkanum.

 

Framkvæmd mótsins gekk vel þó ófærð á Öxi hafi sett tímaplön örlítið úr skorðum. Samhliða sundmótinu hélt Brian Marshall þjálfaranámskeið fyrir sundþjálfara á Austurlandi og var honum vel tekið.

Úrslit mótsins má finna hér

Myndir af mótinu má finna hér og á facebooksíðu UÍA. Magnús Kristjánsson myndaði.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ