Ávaxtamót UÍA og Loðnuvinnslunnar hf
Frjálsíþróttaráð UÍA með stuðningi Loðnuvinnslunnar stendur fyrir Ávaxtamóti UÍA í frjálsum íþróttum sem fram fer í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði fimmtudaginn 1. maí.
Húsið opnar kl.11:30 og keppni hefst kl:12:00.
Mótið er fyrir 10 ára og yngri og er kjörið tækifæri til að kynnast frjálsum íþróttum.
Keppt verður í langstökki án atrennu, boltakasti, spretti og þrautabraut.
Keppnisgjald er 500 kr. óháð greinafjölda.
Allir fá þátttökuverðlaun og góðir gestir bregða á leik.
Skráning fer fram á skrifstofu UÍA í síma 471-1353, í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða á staðnum áður en keppni hefst.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga að taka þátt.