UÍA peysur fyrir sumarið
Nú er vor í lofti og eitt vorverkanna hér á skrifstofunni er að panta UÍA peysur og keppnisbúninga fyrir sumarið. Þeir sem hafa hug á að dressa sig upp og mæta sem UÍA klæddir á mót og viðburði sumarsins, eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna sem allra fyrst.
Eitthvað lítilræði er til af peysum til að máta en hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær stærðir sem Henson býður upp á:
86, 92, 98, 104, 110, 116, 122, 128, 134, 140, 146, 152, 158, 164 (XS), 170 (S), 180 (M), 186 (L), 192 (XL), 198 (XXL) og XXXL.
Peysurnar má fá með eða án hettu. Í hettupeysum er hægt að velja um dömu eða herrasnið.
Pantanir og fyrirspurnir berist á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 4711353