Þróttur sigrar í æsispennandi leik

Þróttur sigraði Aftureldingu í gærkvöldi og náði þannig að tryggja sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í blaki, í Varmá á föstudag kl. 19:30.

 

Þróttarkonur byrjuðu betur með því að vinna  fyrstu tvær hrinurnar, 25:19 og 25:19. Afturelding náði svo þriðju hrinunni eftir að náð að snúa hrinunni sér í vil og kláruðu hana af krafti og unnu hrinuna  25:20.

Fjórða hrinan var æsispennandi og gat hrinan fallið á báða boga allt til enda. Þróttara spýttu í lófana undir lokin, áttu síðustu þrjú stigin og sigrðu 27-25.

Steplurnar okkar voru vel studdar af áhorfendum og vonandi að sem flestir geti fjölmennt á úrslitaleikinn syðra á föstudag.

 

 

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ