Blaklið Þróttar þarf á þínum stuðningi að halda í kvöld
Í kvöld fer fram í Neskaupstað fjórði leikur í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna. Leikurinn sem hefst kl 19:30 er síðasti heimaleikur Þróttar í vetur. Þróttarastelpur eru undir 1-2 í einvíginu og leggja því allt undir til að tryggja sér 5. leikinn og spila þá hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Varmá á föstudag.
Við vonum að stuðningsmenn fjölmenni í húsið í kvöld og hvetjum fólk til að mæta í Þróttaralitunum og nota hávær hvatningatæki.