Þróttur lagði Aftureldingu
Kvennalið Þróttar í blaki sigraði Aftureldingu í fyrsta leik liðanna í rimmunni um Íslandsmeistatitilinn, sem fram fór í Mosfellsbæ í gærkvöldi.
Afturelding byrjaði vel og sigraði tvær fyrstu hrinurnar örugglega 25-19 og 25-15. Þá bitu okkar konur í skjaldarrendur og svörðuðu fyrir sig með sigri í næstu tveim hrinum 20-25 og 19-25 og í ógnar spennandi oddahrinu 10-15. Þróttarliðið var vel stutt af áhorfendapöllunum og ljóst að ekki verður stemmingin síðri þegar liðin mætast í Neskaupstað á föstudagskvöld.
Nánari umfjöllun um leikinn má sjá á vef Austurfréttar.