Glímukrakkar gerðu það gott á grunnskólamóti
Tuttugu nemendur frá Grunnskóla Reyðarfjarðar tóku þátt í Grunnskólamóti Íslands í glímu, sem fram fór 5. apríl í íþróttahúsi Melaskóla. Hópurinn samanstóð af krökkum sem mörg hver hafa æft hafa glímu af kappi með glímudeild Vals, og stóðu þau sig frábærlega.
Grunnskóli Reyðarfjarðar vann stigabikar mótsins ásamt því að eignast fjóra grunnskólameistara, Anthony Thomas Kolosov, Fanneyju Ösp Guðjónsdóttur, Bóas Kár Garski Ketilsson og Bylgju Rún Ólafsdóttur og einnig hrepptu þeir fjögur silfur og fjögur bronsverðlaun. Fyrir mestu var þó leikgleðin og ánægjan að hitta og fá að takast á við glímukrakka hvaðanæva af landinu.