Úrslitarimman í blakinu hefst í kvöld
Fyrsti leikurinn í rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna fer fram í kvöld þegar Þróttur sækir Aftureldingu í Mosfellsbæ heim.
Leikurinn í kvöld fer fram í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ og hefst klukkan 19:30. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Annar leikur verður í Neskaupstað á föstudagskvöld og sá þriðji á mánudag í Mosfellsbæ. Þurfi fleiri leiki til verða þeir eftir páska. Leikurinn í kvöld verður í beinni útsendingu á sporttv.is.
ÁFRAM ÞRÓTTUR!