Vinnufundur um framtíð Landsmóta UMFÍ
Samþykkt var á síðasta sambandsþingi UMFÍ að hefja fundarherferð vegna stefnumótandi vinnu um framtíð landsmóta UMFÍ. Fundur verður haldinn á skrifstofu UÍA miðvikudaginn 26. mars og hefst hann kl. 20:00Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa og við hvetjum alla til að koma og setja sitt mark á umræðuna og framtíðarstefnu Landsmóta UMFÍ.
Hlökkum til að sjá ykkur.