Erna lögð af stað til Sotsjí
Skíðakonan Erna Friðriksdóttir er lögð af stað til Sotsjí í Rússlandi þar sem hún keppir á Ólympíuleikum fatlaðra síðar í mánuðinum. Hluti íslenska hópsins kom á áfangastað í gær.Íslensku ólympíufararnir Erna og Jóhann Þór Hólmgrímsson lögðu í gær af stað frá Denver í Bandaríkjunum ásamt tveimur bandarískum þjálfurum. Þau fljúga í gegnum Frankfurt í Þýskalandi og Istanbúl í Tyrklandi á leið sinni til Rússland.
Þangað eru þau væntanleg eldsnemma í fyrramálið. Þau fara beint upp í Ólympíuþorpið en íslenski hópurinn er staðsettur í fjallaþorpinu á Krasnaya Polyana-svæðinu í fjöllunum ofan við Sochi-borg. Hún er sjálf við strönd Svartahafs. Nokkur Ólympíuþorp eru á svæðinu, staðsett sem næst keppnissvæðum viðkomandi keppenda.
Liðin eru boðin formlega velkomin í þorpin með móttökuathöfn með fánahyllingum og skemmtiatriðum. Fulltrúar landanna og borgarstjórar þorpanna skiptast á gjöfum en hvert þorp á sinn eigin borgarstjóra.
Auk keppendanna tveggja og þjálfara þeirra eru tveir aðstoðarþjálfarar og aðalfararstjóri frá Íþróttasambandi fatlaðra í Sotsjí. Norðurlöndin vinna saman undir hópnum „Five Nations One Team" en alls eru níu íþróttamenn frá löndunum staðsettir í fjallaþorpinu.
Leikarnir sjálfir verða settir með opnunarhátíð á föstudag þar sem íþróttamennirnir ganga inn á Ólympíuleikvanginn.
Erna keppir í svigi föstudaginn 14. mars og í stórsvigi síðasta dag leikanna, sunnudaginn 16. mars.