Meistaramót 11-14 ára í frjálsum íþróttum fór fram um helgina
Um nýliðna helgi fór fram Meistaramót 11-14 ára í frjálsum íþróttum.
Mótið fór fram á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum og framkvæmd þess tókst vel til hjá frjálsíþróttadeild Hattar.
Keppendur voru um 180 talsins og ríkti mikil gleði á mótssvæðinu alla helgina.
Úrslit af mótinu má sjá með því að smella hér
Á mynd með frétt má sjá Hrein Halldórsson fara yfir hlutina í kúluvarpi, ekki slæmt það.