Héraðsdómaranámskeið í knattspyrnu á Egilsstöðum
Næstkomandi sunnudag 26. apríl fer fram Héraðsdómaranámskeið í knattspyrnu á Egilsstöðum á vegum KSÍ.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.
Námskeiðið fer fram í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Egilsstöðum sunnudaginn 26. apríl kl. 10:30. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis.
Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.
Skráning er hafin á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.