Fjarðálsmót í frábæru veðri
Skíðafélag Fjarðabyggðar hélt Fjarðaálsmót í Oddsskarði laugardaginn 28. febrúar 2015 síðastliðinn í flottu veðri og góðum aðstæðum. Það voru rúmlega sjötíu keppendur sem tóku þátt á aldrinum 4 ára til 14 ára og komu þeir keppendur sem mættu til leiks frá Seyðisfirði, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað.
Keppni fór fram í svigi og stórsvigi og margir í yngri flokkunum voru að keppa í fyrsta sinn og stóðu sig með sóma. Keppnin fór vel fram í alla staði og margir sjálboðaliðar sem komu að því að gera gott mót. Úrslit mótsins má finna á facebooksíðu Skíðafélags Fjarðabyggðar