Glímufólkið okkar gerir það gott í Frakklandi
Glímufólkið okkar þau Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Eva Dögg Jóhannsdóttir kepptu á alþjóðlegu Backhold móti í Quimper í Frakklandi nú um helgina, með afar góðum árangri. Ásmundur sigraði þyngsta flokk karla og opinn flokk karla og Eva sigraði -70 kg kvenna og náði öðru sæti í opnum flokki kvenna. Eva var svo í mótslok kjörin besta fangbragðakona mótsins.
Glæsilega gert hjá okkar fólki en þarna voru keppendur frá Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu auk Íslands.