Glímufólkið okkar gerir það gott í Frakklandi

Glímufólkið okkar þau Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Eva Dögg Jóhannsdóttir kepptu á alþjóðlegu Backhold móti í Quimper í Frakklandi nú um helgina, með afar góðum árangri.  Ásmundur sigraði þyngsta flokk karla og opinn flokk karla og Eva sigraði -70 kg kvenna og náði öðru sæti í opnum flokki kvenna. Eva var svo í mótslok kjörin besta fangbragðakona mótsins.

 

Glæsilega gert hjá okkar fólki en þarna voru keppendur frá Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu auk Íslands.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok