Undirbúningur fyrir ULM kominn á gott skrið
Undirbúningur fyrir framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ 2011 er kominn á gott skrið. Í gærkvöldi funduðu Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ og reynslubolti í framkvæmd Unglingalandsmóta og Björn Ármann Ólafsson formaður ULM nefndar, með greinastjórum Unglingalandsmóts 2011.
Góður andi var á fundinum og hugur í fólki að standa sem best að framkvæmd þessa stórmóts.